Færsluflokkur: Menning og listir
13.10.2006 | 23:28
Söguhornið
Við vitum alveg hvað við eigum að gera verum vakandi og hlustum á fréttirnar þær veita okkur alveg ótrúlegar upplýsingar og verum í sambandi við Heiðdísi segir Gissi. Okey sá fyrsti sem klárar verkefnið sitt verður að vera til reiðu að bakka upp segir Gunni. Ég verð nú fjótur að afgreiða eitt tuddagrey, þannig að ég verð örugglega fyrstur ha, en gangi ykkur vel grjónapungar ég sé ykkur fljótt segir Gressi og hlammar sér inn í jeppann með glott á vör og brunar af stað. Á leiðinni stilla þeir allir á sömu stöðina í útvarpinu þegar klukkan gellur tíu.. Fréttir frá fréttastofu Útvarpsins Óðinn Jónsson, umfangsmikil leit er hafinn að mælingaramanni sem talið er að hafi horfið þar sem hann var við vinnu sunnan við þjóðveg 82 leiðinni milli Dalvíkur og Hofsós. Samband hans við neyðarlínuna rofniði þegar klukkan var tuttugu mínútur genginn í þrjú og hefur ekkert spurst til hans síðan. Leit stendur enn yfir að hinni heimsfrægu leikkonu Julie Steles sem hvarf á dularfullan hátt ásamt íslenskri vinkonu sinni á ferðalagi um Vestfirði. Síðast sást til þeirra í Hólmavík þar sem þær tóku bensín, Mikið af erlendum blaðamönnum er hingað kominn til að grenslast fyrir um þetta mál auk þess að fylgja eftir komu Kofi Sannan kemur í opinbera heimsókn á morgun og mun dvelja hér í þrá daga. Hann mun heimsækja aðsetur bæði UNIFEM og UNICEF á Íslandi ásamt því að fara í snósleðaferð upp á Vatnajökul. Á laugardag mun hann snæða hátíðarkvöldverð í forsetabústaðnum á Bessastöðum ásamt forsetahjónunum og ríkistjórninni. Þegar þessar grunnupplýsingar lágu fyrir slökktu þeir allir nema Gunni sem stillti á FM. Þá var bara að fara á póstana sína og bíða eftir frekari upplýsingum eða reyna afla þeirra. Um 4-6 tímum síðar voru .þeir allir komnir á sína staði Gressi á bændagistungu á Hófsósi, Gunni á Edduhótel á Ísafirði og Gissi í kofa við Veiðivötn.
Í hellisskúta við Heklurætur er gamall maður að festa bréf á fót Fálka. Skammt frá situr gömul kona að fægja nýjan 222. kalibera Remington riffil við matarborð þar sem 13 synir hennar og tvær dætur sita og slafra í sig vellingi með slátri og soðinni rjúpu. Fálkinn bíður spakur þar til húsbóndinn hefur lokið við að festa bréfið á fót sinn og þýtur svo út eins og raketta í áttina að bænum. Hann svífur hátt yfir virkjanastigann og stoppar ekki fyrr en hann lendir á þaki á hvítu kubbslegu húsi ekki langt frá miðbænum. Þar biður nýliðinn vatnsgreiddur í dúnúlpu í svörtum lakkskóm og tekur bréfið af fálkanum. Fuglinn skynjar ótta þessa viðvanings og gefur honum nokkrar rispur í andlitið áður en hann nær miðanum. Þegar hann kemur niður í leyniherbergið fer hann rakleiðis til foringjans. Láttu mig sjá þetta strákur, haHa var Fannar að knúsa þig í framan, les miðann sko ég vissi það nefna bara nóg og háa upphæð, verkefni mótekið og samþykkt, nefnið stað og stund. Hann hripar niður á blað allar mögulegar upplýsingar, Hérna farðu með þetta og sendu til baka nýliðinn heldur af stað aftur upp á þak með kvíðahnút í maga. Foringinn sest í Chesterfieldinn jæja Kjarri nú verður skálað sæktu fyrir mig eina XO Camus flösku í vínherbergið það dugar ekkert minna á svona tilefni.
Út úr flugstöð Leifs Eiríkssonar er þeldökkur maður að ganga út ásamt fríðu föruneyti jötna sem tvístra fjölmiðlaelgnum eins og rauðahafinu. Spurningum rigna yfir manninn og byrjar að hljóma eins og fuglabjarg, á brjóstvasanum ber hann stoltur merki sem á er letrað UNICEF í skær hafbláum lit.
3.9.2006 | 16:20
Söguhornið
Hann opnar augun drepur á bílnum svo hann verði ekki alveg olíulaus, lítur svo til hliðar og við honum blasir ógnarstórt naut fnæsandi eins og físbelgur.Eitt augnablik heldur hann að honum sé að dreyma einn að þeim draumum sem eru svo raunvörulegir að maður heldur að þeir séu að gerast allt að þar til brotið hornið á ófreskjunni kemur í gegnum rúðuna og stingst inn í öxlina á honum. Hann er næstum dreginn út um gluggann en nær að spyrna á móti og losa hornið úr. Í geðshræringu hann startar bílnum en bílinn hikstar því hann hefur ómeðviðtað pumpað á fullu bensíngjöfina og hleypt of miklu bensíni inn á hann, fokk drullastu í gang druslan þín boli heggur hausninum aftur inn en hann nær að leggast til hliðar glerbrotin rigna yfir hann. Lokst hrekkur bíllinn í gang, hann stendur hann flatann í bakk og hausinn á bola hrekkur út. Hann kemst upp á moldarveg, adrenalínið flæðir svo hratt í gegnum líkama hans hann finnur ekki fyrir stingandi sársaukanum þegar hann snýr stýrinu og heldur á fram veginn. Hann sér allt í einu óljóst eins og stóran stein birtast úr þokunni á veginum. Þetta er ekki steinn heldur boli sem kemur hlaupandi og móti bílnum og stangar húddið af öllu afli. Hann skellur með hausinn í framrúðuna og vankast. Upp úr húddinu leggur mikinn reyk. En boli er allt í einu horfinn. Hann reynir að starta bílnum en hann er alveg dauður. Hann tekur upp gemsann sinn en það er ekkert samband. Þá man hann eftir fyrirtækja NMT símanum í töskunnu sinni í skotinu. Hann stígur varlega út úr bílnum með vasaljós sem hann fann í hanskahólfinu og staulast valtur á fæti aftur fyrir bílinn opnar skottið og gramsar í töskunnu sinni hann finnur loksins símann og stimplar inn 112 og hringir. Hann geymir vasaljósið í handakriga sínum það lýsir upp andlit hans í sömu andrá og viðkunaleg rödd kemur í símann og segir 112 snýr hann sér við og sér bola standa þrjá metra frá sér niður kinnarnar streyma tár.
17.7.2006 | 21:59
Söguhornið
Ég sé Þorgilsbola á mikilli þoku nálægt Hofsósi það er ekki langt þar til hann nælir sér í næsta munnbita.Hann er kominn yfir heiðina, rymur í Gressa. Hún leggur aðra röð.
Ég sé mikið blóð kring um erlenda erindrekann nálægt Jökulheimum við rætur Vatnajökuls á næstunni. Hún leggur þriðju röðina, hmm ég sé ekki hvar morðingi Gunnu minnar felur sig en ég finn eitthvað mjög sterkt á Vestfjörðum það er eins og einhver sé að reyna að fela slóðina með einhvers konar seið, ég næ ekki sambandi við hana en ég heyri bara veikt öskur.Hún drýpur höfði eins og hún hafa skyndilega sofnað. Okey Gressi þú ert sjálfskipaður í bola, ég skal sjá um Kofann og þú Gunni ferð vestur og bíður þar til það er komið í ljós hvar kauði er
skipar Gissi fyir. Ég! vestur, þekkir þú ekki vestfirði eins og lófann á þér. Hreytti Gunni út úr sér Ég bara meika það ekki, of margar slæmar minningar.
Við fjarðarkjaft Skutulsfjarðar er lítill hrörlegur sveitabær. Á útihúsunum ,sem búið er að breyta í gistiaðstöðu fyrir ferðamenn, hangir útskorið tréskilti á sem á er letrað Beitunes. Úti á hlaði er maður að brytja í sundur sel með flugbeittri sveðju. Það er byrjað að rökkva og hrím er farið að myndast á pollana. Skyndilega heyrir hann bíl þokast nær og að lokum stöðvast hjá honum. Út úr honum stíga tvær stúlkur ein ljóshærð önnur dökkhærð þá ljóshærðu kannast hann alveg skuggalega við en kemur ekki fyrir sér hvar hann hefur séð hana.Er hægt að fá að gista hérna spyr dökkhærða stelpan þeirra. Hann ræskir sig uhh já,... jájá ég bara átti ekki von á neinum það var ekkert bókað, það eru ekki margir sem koma hérna á haustin. Bíðið bara aðeins ég ætla þvo mér svo kem ég með sængur, kodda og sængurföt. Hann hleypur inn. Ljóshærða stúlkan lítur stórum augum á vinkonu sína,með hálfgerðum hrolli what a creepy guy. I thought he was kind of cute svarar sú dökkhærða. Hann kemur aftur að vörmu spori gengur með þeim út að útihúsunum.Heitir þetta ekki Arnarnes segir sú dökkhærða þegar hún les á skiltið á útihúsunum, Jú ég bara vissi það ekki þegar ég kom hérna fyrst og ég ætlaði að fara selja hákarlaveiðimönnum beitu þannig ég kallaði þetta bara Beitunes. Okey, ertu búinn að búa lengi hérna. eitt og hálf ár eitthvað svoleiðis. Ertu bara einn hérna eða... Ja, já það má eiginlega segja það, eruð þið bara í fríi hérna. Já við erum búnar að vera vinna svo mikið undarfarið að þurftum einhvern stað til að hlaða batteríin. Hann opnar inn í herbergið Hérna eru lyklarnir þið bara bankið ef það er eitthvað, já ég heiti Hermann, Hemmi beita oft kallaður. Ég heiti Signý og þetta er Júlía. Hún sendir honum bros þegar hann gengur í burtu. Onei hugsar hann, nei þetta má ekki gerast nú verður hún reið, og afbrigðisöm, sætar stelpur mega ekki koma ég má ekki verða ástfanginn, af hverju af hverju? Kvöldið líður. Júlía lætur vatn renna í skítugt baðið. Im going to take a bath okey kallar hún fram til vinkonu sinnar.Yeah I´m just going to go over and check if Hermann give us a lightbowl for the room. Hún gengur yfir og bankar upp á en áður en hún bankar heyrir hún undarleg hljóð eins og einhver sé að rífast. Hermann kemur til dyra. Hann er stuttur í spuna.Já hvað ,okkur vantar bara ljósaperu í herbergið það er sprungin peran, já já , ég kem á eftir, ég hélt að þú sagðir að þú byggir einn hérna við hvern varstu að rífast, æ þetta er bara ælliær móðir mín. Æ nei nú hefur hún komist að því að hún er hér hugsar hann.
Inn á baði heyrist ekkert nema drippið í blöndunartækjunum. Íhh, ískrar í útidyrahurðinni, Signý is that you kallar Júlía,hello who's there, létt marr heyrist í gólfþjölunum og hringl eins og í keðju. Kaldur gusturinn fyllir herbergið og gæsahúðin læðist upp eftir baki stúlkunnar. This isn´t funny, Signý .Marrið hættir. Hún stendur hægt upp og ætlar að teygja sig í handklæðið. Í sömu andrá svífur inn maður í peysufötum með sveðju í hönd inn., Með einni snöggri hreyfingu hefur hann rist upp maga hennar og með annari skurð yfir hálsinn hún fellur aftrur niður í baðið og kemst ekki upp. Úr heyrnatölum tengdum í litinn iPod sem liggur á baðbrúnninni ómar demóútgúfa af tónlist sem úr kvikmynd sem þær stöllur höfðu nýlokið við að leika í. Hermann leggur við hlustir A little trip to heaven on the wings of your love heyrir hann tónlistarmanninn syngja, þar sem hann reynir að hemja bræði sína með andlitið löðrandi af svita.
Menning og listir | Breytt 18.3.2007 kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2006 | 00:07
Maður lést
<>Lögreglukona lést þegar maður í bleikri knattspyrnuteyju ók á hana á mótum Miklubrautar og kringlumýrarbrautar gæti hafa verið fyrirsögn blaðana föstudaginn 16.6.06. Var að koma af leik með besta utandeildarliði norðan himalæja sem endaði með jafntefli. Skyggni var slæmt og veður vont. Þegar ég ek eftir Miklubrautinni og er að rabba við vin minn Krossfisk. Þegar allt í einu ég sé mannveru vera að sniglast kringum ljósin. Er ekkert að slá af enda grænt og held í tvær sekúndur að þetta sé einhver bjáni eins og ég sem ætlar að hlaupa yfir á gagnbrautinni áður en umferðaraldan kemur. þegar ég sný mér við og ætla halda spjallinu áfram heyri ég samferðamann minn segja lögreglumaður ég lít við. Rétt til getið Krossfiskur þarna stóð ekki bara lögreglukona heldur lögreglukonu með útrétta hendi eins og hún væri "the one", og það gat bara þýtt eitt. Stopp á stundinni. Sem ég og gerði fleytti kerlingar á blautu malbikinu og stöðvaði ca. 5 metrum frá henni. Með skottið á milli lappana bakkaði ég aftur fyrir stöðvunarlínu á beið þar til röðin kæmi að mér. Já það er víst aldrei of varlega farið í umferðinni. En Hvað varð eiginlega um móturhjólalöggurnar sem parkeruðu Harley Davidson hjólunum sínum á miðja götuna voru 2m X 2m að stærð í leðurdressi og n.b með hjálminn á hausnum og stjórnuðu umferðinni?
<>En að léttara hjali þá sá ég Litlu Hryllingsbúiðina í gær sem er alveg magnað stykki. Söngurinn alveg frábær og mikill kraftur í sýningunni. Ég held ég hafi verið um 6 eða 7 þegar ég sá uppfærsluna með ladda sem Ómar en ég man ekki hvort hún hafi endað svona kom mér alla vega á óvart. Held að í FB uppfærslunni um árið þar sem Sveppi var Baldur hafi þau endað hamingjusöm í húsinu.
<>
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 00:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.6.2006 | 00:56
Söguhornið
- Hvern höfum við sem ræður við verkefni að þessari stærðargráðu? Það liggur mikið við George Bratt hótar brotthvarfi hersins.
Þybbinn þunnhærður maður tekur til máls.
- Við verðum að kalla á einhverja pottþétta ég legg til að við látum þetta í hendur G og L og co..
Þriðji maður maðurinn grannvaxinn og ljóshærður skýtur inn í.
-G og L hverjir eru það
Dökkhærði krullhærði maðurinn sem hóf umræðurnar uppfræðir nýliðann
- Þau eru hættulegustu leigumorðingjapar Íslandssögunnar með flekklausan feril hlustaðu á þetta Björn ríki á Skarði, Reynisstaðbræður, Árni Magnússon listinn heldur áfram aldrei hefur komist upp um þau
- Hvað gerði Árni af sér til að ve...
- Æ hann var með einhver skjöl sem gætu afhúpað leyniregluna hvað segiru Kjarri er þetta ekki ákveðið
Þybbni maðurinn kinkar kolli Nýliðinn er enn að átta sig á umhverfi og háttum stórlaxana.
- Hvernig gengur þetta fyrir sig er hringt eða sent meil.
- Huu! Ertu frá þér, eitthvað sem hægt er að rekja til okkar eða hvaða Jón Ásgeir Jónsson sem er getur stolið, það er sendur bréfafálki upp á hálendið þar sem þau eiga heima.
- Bréfafálki?
- Hvað heldurðu við sendum heimska dúfu sem frýs í hel upp á jökli það er ekki að ástæðulausu að það er fálki sem er tákn reglunnar þetta er sko fugl með alvöru hreðjar.
Í flugstöð Leifs Eiríkssonar ganga þrír menn vasklega út komuganginn. Gunni Há, Gissi Súr og Gressi Áss eins og þeir kalla sig. Allir líktust þeir kvikmyndastjörnum í kvikmyndum. Gressi svipaði til Hugh Sackman í Xmen Gissi nokkuð líkur Tom Crose í Last Samurai, en líkastur var samt Gunni Há leikaranum Brad Fitt í Tróju. Svo líkur að fegursta fljóð jarðarinnar fékk öran hjárslátt og roða kinnar þar sem kapparnir örkuðu í átt að tollhliðinu.
Einn að tollurunum gerir sig breiðann og stöðvar þremenningana.
- Stop can we take a look att your bags
Gissi sem vanalega hafði orð fyrir þeim og hafði mesta andlega styrkinn notaði Jedibragðið sitt.
- We have nothing to declare
Tollarinn endurtekur vélrænt
- you have nothing to declare
- You will let us through
- I will let you through
Áfram arka þeir út í bílaleigubens og aka á brott. Tveir hrafnar fylgja þeim alla leið frá Keflavík. Þeir lenda fyrir utan blokk í Sólheimum og banka á íbúð á efstu hæð.Dyrnar opnar lítil stúlka og hleypur skelkuð í faðm langömmu sinnar þegar hún sér heljarmennin.
Gissi hefur upp raust sína
- Góða kvöldið Heiðdís, afsakið ónæðið okkur þykir leitt að heyra með dótturdóttir þína. Við erum komnir til að vera landi og þjóð til handar á síðustu og verstu tímum en fyrst þurfum við á hjálp þinni að halda.
- Sælir piltar gangið í bæinn, ég átti von á ykkur, tillið ykkur bara inn í spáherbergi ég darf aðeins að dytta af mér áður en ég næ í spilin ég er nefnilega að taka slátur. Grettir minn værir þú ekki til í aðstoða mig aðeins inni í eldhúsi.
Hann eltir hana þögull inn í eldhús
Fullt tunglið skein inn um gluggann og speglaðist á dökkrauðu yfirborðinu.
- Ertu ekki til í að lyfta þessum bala fyrir mig upp á borð ég er svo helvíti slæm í bakinu.
Hann tekur fullann balann upp skellir honum á borðið eins og hann væri mólkurpottur, í balanum gárar blóðið.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 01:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2006 | 20:48
Söguhornið
Rannsóknardeild lögreglunar hefur enn ekki orðið ágegnt í rannsókn sinni í Grafarvogsmorðinu svokallaða. Liðið er hált annað ár er síðan morðið var framið og hafa engar vísbendingar enn leitt rannsóknarlögreglumenn á sporið. Jafnvel er talið að árásarmaðurinn er hafi flúið land.Stærsta fjárfestingafélag landsins var stofnað í dag þegar Straumur-Burðarás, FL group, Bakkavör group og Baugur group sameinuðust í dag. Tvisvar hefur verið reynt að sameinst áður en þá náðist ekki samkomulag milli fjárfesta. Nýja fjárfesingafélagið heitir Gullveig group og... gífurlegur drunur yfirgnæfir útvarpsfréttamanninn þegar fjögur Harley Davidsson hjól renna í hlað.Á krómuðu afturbretti hjólanna er upphleyptur snákur og gyllltu frambrettinu lítil stytta í laginu eins og ljónshöfuð. Bifhjólin eru nákvæmlega eins nema bensíntankurinn sem er spreyjaður í sitthvorum litunum. Einn er hvítur,annar Svartur, þriðji bleikur og fjórði rauður. Knaparnir stíga af vélfákum sínum einn þeirra tekur fjórar sígarettur upp úr pakka ýtir niður höfðu ljónsins og út úr skoltinum skýst armlöng eldtunga. Hann keikir í og réttir félögunum sínum eina rettu hver og saman fara þeir reykjandi inn. Sjoppu eigandinn sér bara reykjarmökk fram í sal og ætlar að fara og ausa yfir þetta reykingapakk sem sýnir reyklaususkiltunum enga virðingu. Hann hættir snögglega við þegar hann sér fjóra jötna ,sitja við gluggann, sem gætu afhausað hann með einum selbita. Jæja rymur í Herra Bleik þá er maður búinn að sleppa dýrinu lausu. Þú meinar dýrunum skýtur Herra Rauður inn í. Já þau eru orðin nokkur. Hafiði heyrt fréttirnar ofurhetjurnar eru á leiðinni til landsins segir Herra Svartur. Nú hverjir af þeim Big E, ha Easy E segir Herra Hvítur. Nei hann er í skriftarhóp Stóru bókar, leiðbeiningarbókina fyrir Neó Sapiens. Það er bara G unit sem eru á leiðinni. Gunni Há, Gressi Áss og Gissi Súr svarar Herra Svartur. Jeps skýtur Herra Bleikur inn í þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Hvað varð eiginlega um þá eftir þeir uppgötvuðu krafta sína spyr Herra Hvítur, þeir voru allir um tíma í riddarareglum í evrópu svo splittuðu þeir til að gera langa sögu stutta endaði Gunni sem framleiðandi í Hollywood, Gissi í Japan sem viðskiptajöfur og Gressi sem enhver verndari þorps fyrst á Indlandi og svo í Súdan. Ástandi verður brjálað innan tíðar ekki veitir af hvítum riddurm, skyttunum þremur. Já það verður það alltaf þegar sá Stóri rístarar apparatinu.
Á sama tíma í húsi við Austurvöll er dökkhærður maður að tala í síma.
- No Mr. Bratt it´s impossible even though you are very powerful man we are a peacefull nation, -
-Hey do you want the damn planes to stay or not.
-But it´s insane to assinate Kofi Sannan on his trip here,
-He´s giving us a hard time and listen I don´t think your in any possison to negotiate son.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 21:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2006 | 09:47
Kredetlisti
Bjóst reyndar alveg við því. Eftir situr Pabbi Indíana Jónas eftir með
sárt ennið og Trójuprinsinn Paris og Miss Monneypenny alltaf út í
kuldanum. Bara eftir að leggja hraðbrautina í gegnum
stofuna. Ég verð samt að gefa Leikstjóranum Dóra og
aðstoðaleikstjóranum Geira kredit fyrir ágætis kvikmyndasýningu,bíð
spenntur eftir næsta plotti og endinum.Ætti bara ráða þá sem höfunda
næstu Lost seríu, "æ .þetta var bara draumur" er orðið ansi þreytt grín
þegar búið er að skrifa sig út í horn. And cut thats a rap
folks.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 12:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.5.2006 | 11:09
Knottsningarspyrna
Íslandssögunnar eins og Andri Snær orðaði það. Leikmenn hafa
rusltalað hvern annan allan mánuðinn og eru orðnir eldheitir og
tilbúnir í slaginn. Skemmtileg loforð sigurvegara hafa glatt mig
eins og vatnsrennibrautagarður,sem er mikil þörf á þegar gamalt og
sjúklingar er látið lifa í eldspýtustokkum og að gefa öllum
Reykvíkingum x summu fyrir sölu Landsvirkunar, eins og það myndi
einhvern tímann gerast, að þeim peningar yrði ekki varið í
framkvæmdir. Ungi fyrirliði rauða liðsins hefur farið mikinn og
hefur mátt þola endalaus háðsglott frá gömlu kempunni í bláa liðinu sem
lítur út fyrir að vera maður sem veit. Já kosningar má líkja við
hvað sem er líka knattspyrnu. En það er einmitt hugsunarháttur
sem margir hafa. Halda með sama liðunu til dauðadags sama hversu
illa gengur og þeir eru ömurlegir. En tryggð við sitt lið er ekki
sama skapa sér framtíð. Ég var ekki vissum hvað lið ætti að halda
með fyrir keppnina, ætlaði að halda með þeim bláu enda gallharður
Frammari þangað til ég fór að kynna mér leiktaktíkina þeirra. Og
viti menn þeir ætla að troða mislægum gatnamótum upp í görnina á
mér. Ég vel þann rauða í staðinn jafnvel þó ég myndi aldrei halda
með val.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 11:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2006 | 13:22
Söguhornið
Ófreskjan líkist nauti með brotin horn, sinarnar og vöðvarnir lágu berar utan á því og skinnið drógst lafandi á eftir skepnunni. Útúr nösnunum gaus gulur reykur með megnum brennisteinsfnyk og í blóðhlaupnum augunum sem fylgdu hverri hreyfingum bráðinnar eftir mátti aðeins greina eitt, hungur í mannakjöt. Maðurinn í geðshræringu sinni gat ekki staðið upp og bakkaði skríðandi. Það eina sem hann gat stunið upp áður en hann féll í yfirlið af sársauka var In nomini patri
Menning og listir | Breytt 4.5.2007 kl. 16:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.5.2006 | 12:40
Söguhornið
Gullinbrúnna hann heldur fluginu áfram í leit að ætum bita. Í
fjarskanum sér hann eitthvað glitrandi. Hann lækkar flugið og sest á
húsþak. Það sem hefur vakið augu hans er silfurgrá Jeppabifreið og
annað glitrandi undarlegt áhald. Við eitt hjólið liggur ljóshærð kona í
blárri dragt. Niður vangann sameinast þrjár ár og verða að einu
beljandi stórfljóti, ísköld rigningin volg tárin og heitt blóðið. Í
hálsakotinu liggur lítil stúlka hún þorir ekki að hreyfa sig hún horfir
enn á skuggaveruna ,sem rís eins og skýjakljúfur yfir þeim, og grætur
hann starir á þau stingandi augum. Það er eitthvað mjög ómanneskjulegt
við þau eins og að horfa inn í hyldýpi. Í fjarska heyrir hann sírenuvæl
sem harmonerar við væl stúlkunnar. Fokk hugsar hann með sér einhver af
þessum ríku úthverfahillbilla beljum hefur hringt á lögguna. Hann veit
að hann verður að láta láta sig herfa einhvert langt í burtu þau bæði.
Hann stingur sveðjunni inna á sig sveipar að sér frakkanum og hleypur
út í myrkrið. Brátt er rauð gatan stúkuð með gulum böndum og gatan
fyllist af bílum með bláum ljósum. Forvitinn múgurinn þéttist og
þéttist og verður hágværari. Fulltrúar hins valda sannleika og hins
sanna sannleika voru kominir á stjá. Ljósmyndaflössinn flóðlýsa
vettvanginn. það setur hljóðan þegar drunur í fjórum Harley Davidsson
mótorfákum fylla steypudalinn. þeir halda sig í hæfilegri fjarlægð því
ef það eru einhverjir grunnsamlegir þá eru það fjórir leðurklæddir
menn, þrír með skegg og sítt hár og einn sköllóttur allir með letrað
Mareshon í gotnesku letri aftan á bakinu. Þeir líta á hvorn annan kinka
kolli og þeytast svo í burtu. Einn rannsóknarlögreglumaðurinn fylgir
einnhverjum eðlishvötum hvíslar í eyra kollega síns hleypur inn í bíl
og ekur af stað á eftir þeim. Rökrið breytist í myrkur og hrafninn
hefur sig til flugs á ný eftir að hafa séð nóg hann flýgur yfir sundið
fram hjá blokkaríbúð þar sem gömul kona lítur út um gluggann og horfir
á regnið sem lemur rúðuna. Konan segir við sjálfan sig " þær ættu að
vera löngu komnar ég fer að fara að hafa áhyggjur af þeim" Krummi sest
á svalarhandriðið og krúnkar, engu líkara en hann sé að boða henni
sorgarfréttirnar. Kalt vatn rennur henni milli skins og hörunds því hún
skynjar hvað sé á seyði. Í því andrá hringir síminn, í útvarpinu
heyrist þulurinn segja "þetta er Guðni Már Henningsson sem kveður ég
set hérna síðasta lag fyrir fréttir eitt gamalt og gott með Bubba"
gítarómur fyllir stofuna og dimm rödd kóngsins kveður "móðir hvar er
barnið þitt svona seint um kvöld".
Menning og listir | Breytt 23.5.2006 kl. 15:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)